![]() |
|||
Halló og velkomin á heimasíðuna mína.Ég heiti Arnar Þórsson.
Alltaf nýjar myndir í símablogginu mínu...
Ég fæddist á Landsspítalanum laugardaginn 9. september 1995. Ég var að vísu ekki sá eini sem fæddist þennan dag því tuttugu mínútum eftir að ég fæddist þá kom bróðir minn Friðrik í heiminn og svo tæpum tveim árum eftir það þá kom Egill yngsti bróðir minn. Mamma mín heitir Guðrún Björk Friðriksdóttir. Hún er úr Hafnarfirði en fluttist í sveitina tveimur árum áður en ég fæddist. Núna vinnur hún sem hönnuður hjá Skessuhorni. Pabbi minn heitir Þór Þorsteinsson og hann hefur alltaf átt heima í húsinu okkar. Hann á Nepal-hugbúnað og vinnur þar. Vefurinn minn er einmitt gerður í nepal og þess vegna get ég sjálfur sett inn allt efni sem ég vil.
Ef þú vilt senda mér tölvupóst þá er netfangið mitt og það líka aðgangurinn minn á MSN, ég er alltaf á MSN og ég elska að tala við fólk svo endilega bættu mér inn.
Endilega skoðaðu myndirnar og dagbókina mína og skrifaðu við þær.
Góða skemmtun.
Boom Bang.TV Smella hér Runescape Smella hér |
|||
![]() |
|||